|
|
30.09.2008 19:54:56 / Anna Ragna
Jæja, Vala vill blogg-best að hlýða  Þá er september að verða búin, komin mánaðarmót sem þýðir að það þarf að borga leigu á morgun!!! Djö..er þessi helv. króna óþolandi maður. Ég er að spá í að skella mér til Lundar í heimsókn í desember en þetta flugfar er bara orðið svo djö. dýrt og danska krónan komin í 19! Rugl! Skólinn gengur bara vel, soldið mikið um verkefni reyndar en það er reyndar bara gaman. Vettvangsnám í næstu viku og ég er bara orðin doldið spennt yfir því, prófa að vera á e-m öðrum leikskóla en Furukoti  Svo var verið að kynna fyrir okkur verkefni í sálfr. sem er mjöög spennandi en þar eigum við að gera athuganir á börnum á mismunandi aldri..það verður gaman! Ég er búin að vera ógisslega dugleg í dag frá því að ég kom heim. Ég byrjaði að ryksuga alla íbúðina, tók svo baðherbergið í gegn, setti í þvottavél, lærði, eldaði mér mat og bjó til túnfiskssalat og gekk svo frá þvottinum! Er ekki frá því að maður sé að breytast í húsmóðir haha...Neinei reyndar finnst mér þetta bara allt í lagi-nema að elda..það er svo öömurlega leiðinlegt að elda fyrir sig sjálfa og hef ég þess vegna bara alltaf haft e-ð easy og einhæft..ég verð komin með ógeð á kjúklingabollum, pasta og hakki&spaghettí eftir veturinn hehe. Reyndar fer ég reglulega í mat til móðursystra minna sem er bara frábært. Ég skellti mér norður um síðustu helgi á laufskálaréttarball og skemmti mér rosalega vel. Vala meistarakokkur bauð heilum 8 manneskjum í mat..fengum ótrúlega góðan kjúlla og salat og brauð með...mmmm fæ vatn í munninn bara. Svo var setið og spjallað og jújú smáá sötrað líka og svo var það ball. Ballið leið svo hratt og allt í einu var kl. orðin 4 og öll ljós kveikt. Þá var haldið til Völu í afganga, ég, Dóri og Atli vorum að fíla þennan kjúkling..Vala fór hamförum í samlokugerð með Georg Forman grillinu en aumingja Magga og Inga misstu af þessu öllu því þær voru sofandi í sófanum  Setti myndir inn á feisbúkkið. Fer svo norður aftur um næstu helgi því afi kallinn er að verða áttræður og verður haldið smá ammæli heima á Krók! Jæja Vala mín, vonandi ertu sátt með þetta! Húsmóðirin kveður...
»
08.09.2008 14:52:11 / Anna Ragna
Ég ætlaði mér nú að hætta að blogga en fyrst að maður er fluttur enn einu sinni, í þetta skiptið á höfuðborgarsvæðið, þá ákvað ég nú að skrifa inn einstaka færslu fyrir Níní og vinkonurnar á Króknum
Sumarið leið hrikalega hratt og áður en maður vissi af var bara komin 18 ágúst og mín að flytja í borgina! Sumarið var bara rosalega fínt, fengum bara fínasta veður í allt sumar, nokkrir ísrúntar með vinkonunum, djammið stóð fyrir sínu og svo ég tali nú ekki um útileguna á Borgarfjörð Eystri með Söru og Völu sem var algjör snilld og ekki skemmdi veðrið fyrir þar! Stefnan um Versló var tekin á Eyjar (flugfarið var pantað í Apríl, sjáiði til!!) og ómæ hvað það var gaman. Snilldar ferð í alla staði og ferðafélagarnir líka. Þó svo að rigningin hafi verið heldur mikil á sunnudagskvöldið fórum svo heim á mánudeginum í bongóblíðu eftir nokkra tíma seinkun og vorum komnar á Krókinn um 1 leytið um nóttina! Fékk reyndar tveggja vikna sumarfrí þarna í júlí og þá var kíkt í borgina á Níní og krakkaskarann...ótrúlega gaman að sjá þau öll og þau mundu sko alveg eftir mér, komu hlaupandi á móti mér bara
Já svo kom bara allt í einu 18 ágúst og þá var komin tími til að flytja dótið sitt til RVK. Var reyndar hjá systur mömmu fyrstu vikuna og svo um mánaðarmótin fengum við Helga íbúðina okkar sem er í Neðstaleiti 8. Rosa fínn staður og íbúðin svona að komast í stand, hún er frekar stór eða um 100 ferm. Alli bróðir kom í heimsókn um helgina og hann sagðist bara hafa fengið víðáttubrjálæði heh Já ég er semsagt byrjuð í Kennó (eða menntavísindasvið HÍ, til að vera nákvæm) á leikskólabraut. Lýst rosalega vel á þetta allt saman, kúrsarnir spennandi og búin að kynnast nokkrum stelpum Er reyndar yngst í þeim hópi sem ég hef haldið mig mest við og þær eiga allar börn en það er bara gaman af því Þetta er rosalega fjölbreyttur hópur, margar fæddar milli ´70-´80 og meira að segja ein sem er fædd ´65. Þannig að þetta er allavegana hér Ég er með þeim yngri. Nú þegar maður er komin í sína „eigin“ íbúð þá þarf maður að sjálfsögðu að þvo þvott og elda og svona...og mikið er það leiðinlegt að elda fyrir bara sig sjálfa! Helga er búin að vera lítið heima vegna körfuboltaæfinga og utanlandsferð með körfunni. Jújú ég hef verið boðin í mat til Svönu og Elvu (systur mömmu) og svo hef ég nú eldað hakk og spaghettí fyrir mig en ég ákvað að fá mér kakósúpu á föskv. Og það gekk ekki betur en svo en að það sauð uppúr..sjitt hvað ég var brjáluð, var þvílíkt að passa mig að fylgjast með suðunni svo hringdi síminn minn svo ég fór fram og náði í hann og á meðan sauð uppúr og allt út um allt! Frábært alveg og ekki nóg með það þá hafði ég misst egg á gólfið svona hálftíma áður. En fall er fararheill og súpan smakkaðist bara prýðilegaJ Jæja nóg af blaðri í bili..bara smá update. Næsta blogg kemur bara þegar ég nenni því hehe, þegar maður hefur e-ð merkilegt að segja
Háskólaneminn kveður..
»
22.05.2008 10:59:44 / Anna Ragna
Jæja komið að kveðjustund! Dvölin hérna í Lundi er búin. Fer með fluginu kl hálf tíu í kvöld og Árni bróðir er með mér. Vorum einmitt að pakka áðan og djöfull er hægt að sanka að sér miklu dóti og drasli, eins gott að Árni kom með tösku sem hægt var að stækka!! Jæja við vigtuðum töskurnar áðan og mín var 15 kg en Árna 19,4 haha það mátti ekki muna miklu!! Dagskráin í dag er svosem ekki mikil bara að klára að ganga frá hérna í herberginu og svo ætla ég að fara með Níní að sækja krakkana á leikskólann...svona í síðasta skipti  Grilluðum saman hérna í gær, Guðbjörg og Teddi og Ásta og Davíð komu í mat. Svona kveðjudinner heh, horfðum svo á leikinn í gær og guð minn góður hvað þetta var stressandi, aðra eins vítaspyrnukeppni hef ég bara ekki séð en við Árni fögnuðum auðvitað vel eftir leikinn. Hringdi svo heim og þar voru allir heima hjá Auju og Bóa og það var ekki hægt að heyra neitt sko, það var allt brjálað, þau voru búin að opna rauðvín og freyðivín og ég veit ekki hvað og hvað í tilefni sigursins. Þetta var allavega mjög góður endir á Lundardvölinni. Búið að vera ótrúlega gaman að vera hérna í Lundi og þetta er reynsla sem fer alveg í reynslubankann sko, ekki heldur á hverjum degi sem maður fær að passa þríbura  En ég kem í heimsókn aftur í haust í verslunarferð og svona  Annars er ég svo bara hætt að blogga... Sjáumst á Króknum á sunnudaginn  Takk og bless
»
01.05.2008 18:43:17 / Anna Ragna
- Jæja komin tími á smá fréttir af mér...Æji höfum þetta bara stutt og laggott og í punktaformi..

-Kíkti til Kölnar á Völu fyrir tveim helgum. Var frá föstudegi til mánudags. Soldið ferðalag en alveg þess virði en ferðalagið hófst kl. kl 6 á fös.morgun; lest á Kastrup, Flogið til Dortmund, Bus út á lestarstöð og svo loksins lest til Kölnar. Fengum geggjað veður alla dagana og á sunnudeginum var geggjað veður 25 stiga hiti á pallinum svo þeim degi var bara eytt í rólegheit (og kannski smá þynnku hjá sumum haha). Annars kíktum við í bæinn á fös og lau og svo á handboltaleik hjá Gummersbach-vorum í VIP stúku og alles, rosa flott Kíktum svo út á lífið á laugardagskvöldið, fengum geggjaða kokteila og skot, kíktum svo á e-n klúbb og tjúttuðum smá. Þjóðverjar eru samt ekki með góðan tónlistarsmekk, þekktu ekki Timbaland eða JT!!! Alveg glatað, en gátum samt dansað e-ð og vorum komnar heim um 5. Fór svo eldsnemma heim á mánudeginum og við tók sami ferðamátinn og á leiðinni til Kölnar. Fínasta ferð alveg hreint
-Svo tóku við rólegir dagar hér í Lundi. Fórum yfir til Köben (ég, Níní, ÞM og JB-hinn helmingurinn var á Íslandi) á fimmtudaginn síðasta og vorum alveg fram á sunnudag. Fengum alveg frábært veður, sól og blíða og um og yfir 20 stig þegar mest var. Kíktum 2 á Bakken og fengum besta ís í heimi með flödebollum og alles haha Og grilluðum svo líka og nutum veðurblíðunnar í Köben. Náðum svo í restina af familíunni á sunnudagskvöldið. Ótrúlega gaman að sjá krakkana hittast alla aftur (sérstaklega þríbbanna) þau alveg skríktu, hlógu, hlupu um og hoppuðu af kæti. Ótrúlega sæt e-ð
-Svo tók aftur við leikskóli hjá öllum og veðrið hérna í Lundi er búið að vera geggjað. 25 stiga hiti og bara frábært. Nema í dag, rigning og leiðinlegt. Einmitt þegar allir eiga frídag!!
-Krakkarnir eiga 2 ára ammæli á mánudaginn. Gaf þeim rennibraut í garðinn sem er búin að vekja ágætis lukku Verður e-ð smá grill fyrir nokkra vini á mánudaginn og svo verður afmælisveislan sjálf á sunnudaginn 10 maí og þá verður örugglega alveg nóg af fólki. Biggi og Ása (vinafólk Níníar og Kidda) koma þann dag en þau eignuðust þríbura 20 des sl. og ætla að vera hér í viku. (gista reyndar í næsta húsi við okkur) En það verður eflaust fjör alla þá vikuna með öll börnin og það elsta 4 ára haha
-Svo kemur Árni bróðir 19 maí (verður fyrst í dk og e-ð í Svíþjóð með 10 bekk) og ætlar að vera hjá mér í nokkra daga og fljúga svo með mér heim 22 maí. Það verður gaman að hitta hann. Svo það styttist heldur betur í að ég komi heim-dvölin að verða búin!! Trúi því eilla ekki. Finnst þetta búið að líða allt of hratt, ekki það að ég hlakki til að koma heim. Bara búin að vera hérna í 8 mánuði 8 (næstum jafnlangt og heil meðganga hahah) og fannst alltaf svo langt í Maí! Tilfinningarnar eru svona beggja blands-kvíði fyrir og hlakka til. En ég verð komin aftur hingað út í heimsókn áður en ég veit af haha.
Jæja gott í bili..Minni fólk á að kommenta ( verður væntanlega næstsíðasta bloggið mitt hérna úr Svíaríki og örugglega bara það sem eftir er, er að spá í að hætta þessu bara)
Until next..
»
02.04.2008 20:26:19 / Anna Ragna
Ég er svo alls ekki að standa mig í þessu blessaða bloggi. Komin Apríl og lítið eftir af dvölinni minni hérna í Lundi!! Ekki komin alveg viss dagsetning á heimkomu en við erum e-ð að skoða seinni partinn í Maí eða svona í kringum 20 en það fer alveg eftir því hvenær ég byrja að vinna og svona. Svo það er ennþá allt í skoðun bara. Frá því að ég skrifaði síðast hefur svo sem ekkert mikið gerst en það er svona þegar maður skrifar ekki reglulega þá man ég hreinlega ekkert hvað hefur gerst! Krakkarnir eru að verða tveggja ára núna fimmta maí og þau eru orðin svo dugleg og stór finnst okkur. Tala alveg stanslaust, og við skiljum svona takmarkað hehe..aðallega bara þessi algengu orð,mamma, pabbi, Anna, drekka, sitja, api (eiga svona apa sem þau druslast með allt), dudda og fleira. En svo erum við nú dugleg að æfa þau í að tala, segja þeim að segja þetta og hitt. Ég verð að segja ykkur frá einu fyndnu sem gerðist um daginn. En þannig var að ég vakna upp eina nóttina við að Jónas Breki er e-ð að umla og grætur smá. Svo heyri ég hann segja Mamma en ekkert svar kemur svo hann prófar aftur en ekkert svar. Þá var bara að prófa að kalla á pabba sinn en það kom ekkert svar í 3 tilraunum hjá drengnum. Jæja þá var bara að redda sér og þá heyrði ég bara öskrað liggur við ANNA!! Sjitt hvað þetta var fyndið en svo hætti hann nú þessu kalli og sofnaði loks. Þórdís Magnea gerði það sama um daginn..þetta er svo krúttlegt Mamma og pabbi komu í síðustu viku og fóru á mánudaginn síðasta. Var ótrúlega gaman að fá þau. Pabbi fór reyndar strax til Kristianstad en við mamma eyddum dögunum þá bara hérna í Lundi og versluðum, skoðuðum bæinn, hverfið sem ég bý í og fleira. Keyrðum svo yfir til Kristanstad á föstudaginn og náðum í pabba og fórum svo bara heim aftur eftir að hafa skoðað miðbæinn þar í 3 tíma eða svo. Krakkarnir tóku þeim bara mjög vel..JB var farin að kalla Magga strax á öðrum degi. Sverri Þór fannst líka agalega gaman að spjalla við mömmu og ég held hann hafi líka soldið brætt mömmu Svo um helgina skoðuðum við kirkjuna í Lundi og vorum bara að rölta um bæinn og sonna...kíktum svo á pöbb og horfðum á United gjörsigra Villa. Veðrið er búið að vera svona upp og niður. Fyrri hluti mars var alveg æði og ég var bara búin að segja mömmu að það yrði komið vor þegar þau kæmu...svo vikuna fyrir páska kom bara snjór, mikill kuldi og bara svona eins og íslenskt veður!! Lang kaldasta vikan síðan við komum út. Alveg viðbjóður bara! Þegar m&p lentu svo á Kastrup snjóaði bara og var frekar kalt, daginn eftir var bara alhvít jörð en svo skánaði það þegar á leið. Svo sama dag og þau flugu heim ( á mánudaginn) kom bara þessi bongó blíða 18 stiga hiti og sól og bara æðislegt veður..vorum bara úti með krakkana allan daginn og leika okkur e-ð. Veðrið var líka gott í gær og í dag þannig að við höldum í vonina um að vorið sé að koma og það verði bara gott veður fram í október heh. Hætti í skólanum núna um daginn...það var ekkert ægilega gaman að vera bara einn í tima eða kannski 3 svo ég bara hætti. Svosem ekki mikil alvara í þessu hjá mér en það verður bara skemmtilegra að byrja almennilega í haust. Hlakka bara til að byrja nýjan kafla í lífinu sko, hef heyrt að djammið í Kennó sé alls ekki slæmt hehe svo þetta verður örugglega bara gaman..vera í bekkjarkerfi og kynnast nýju fólki! Helga frænka eignaðist sinn þriðja strák á dögunum og ég átti bara ekki orð!! Ég var svo viss um að þetta væri stelpa heh en svo varð víst ekki..ég veit ekki hvað er málið með alla þessa stráka í ættinni..alveg komin tími á stelpu. Ég og mom kíktum í barnabúðir og keyptum smá á prinsanna enda ekki annað hægt þegar maður er með Lindex, Kappahl og þessar búðir hérna hjá sér!! Jæja komin nóg af blaðri..veit svosem ekkert hvenær næsta blog verður..en allavega þá minni ég á regluna góðu; allir að kommenta sem koma og lesa!! ...later..
»
05.03.2008 20:49:57 / Anna Ragna
Jæja komin mars sem þýðir að ég er búin að vera hérna í næstum fimm og hálfan mánuð!! Ótrúlega fljótt að líða – ég verð komin heim áður en ég veit af sko! Annars gengur lífið hérna í Lundi bara þokkalega nema hvað að hér eru veikindi í gangi-hvað er málið með þessi veikindi!? Þórdís Magnea og Jónas Breki voru komin með hita á sunnudaginn og eru bæði rosalega kvefuð og hósta alveg út í eitt- sérstaklega Þórdís Magnea..alveg hræðilegt að heyra í henni. Og þegar svona veikindi eru í gangi þá segir sig oftast sjálft að þá eru næturnar frekar erfiðar...ég og Níní sváfum lítið á sunnudagsnóttina, ég var vöknuð fyrst kl. 5 og svo vaknaði ég annað slagið eftir það og hjálpaði Níní að sinna börnunum en Kiddi var á næturvakt. Nóttin í nótt var líka svona frekar erfið..greyið ÞM hóstar svo svakalega alla nóttina og nær e-n vegin ekkert að festa kannski alveg svefninn. MB var vöknuð kl. 6 og sofnaði ekkert eftir það en var samt rosa góð og lá bara hjá Níní, JB vaknaði upp úr sex og vildi bara mömmu sína en ég tók hann bara inn til mín og þar kúrðum við okkur saman og hann svaf þar til að verða níu í morgun!! SÞ vaknaði kl hálf sjö og sofnaði ekkert aftur. Semsagt næturnar hafa gengið frekar illa undanfarið, Níní greyið vakir fram á nætur og lærir – er að 2 stór hópaverkefni núna en vonandi fer þetta allt að lagast. Stefnan er að setja JB á leikskólann á morgun en ÞM fer örugglega ekkert þessa vikuna, er svo slöpp. Við eldri deildin höfum alveg sloppið við veikindi þennan umgang..enda engin pesti svosem í gangi núna. Ég hef sem betur fer sloppið við allar þrjár ælupestirnar sem eru búnar að vera hérna frá því í des! Maður er svo helv...hraustur Best kannski að vera ekkert of mikið að tala um það...það gæti endað með því að maður fengi e-a pestina. Vonandi eru samt þessar pestir búnar fyrir árið!! Ég alveg iða í skinninu núna mig langar svo að kaupa barnaföt!! Hehe, Guðbjörg og Teddi ( sem búa í næsta húsi við okkur) voru að eignast stelpu þann 28 feb svo ætli maður kíki ekki við í Nova við tækifæri og kaupi e-ð handa litlu dömunni, sem fékk nafnið Auður Margrét. Svo er stutt í að Helga frænka eignist sitt þriðja barn sem ég held að sé stelpa- það er nóg komið af strákum í þessari ætt...jii ég get ekki beðið eftir að fara í Kappahl, HM og Lindex og kaupa sæt barnaföt..til svo ótrúlega mikið af þeim hérna!! Mætti í skólann í dag. Tíminn átti að byrja 10 en ég var EIN mætt kl. 10 og hugsaði með mér að annað hvort væru bara allir hættir í þessum kúrs eða þá að allir væru seinir fyrir- m.a.s kennarinn var ekki mættur!! En jújú svo kom hann og ég settist inn í stofu og við biðum og biðum og hann sp. mig hvort það komi ekki örugglega fleiri, ég vonaði það..hálfhallærislegt að vera ein þarna. Kennarinn ákvað bara að skreppa út og fá sér eins og eina sígó og koma svo aftur. Á meðan hann fékk sér „fresh air“ gerðist ekkert..enginn kom! Jæja haldiði að mín hafi ekki bara verið ein þarna og hann hélt fyrirlestur sem ég ein hlustaði á!! Þetta var svosem alveg fínasti fyrirlestur en ég hef bara aldrei lent í öðru eins, vera bara ein í tíma að hlusta á fyrirlestur-held að flestir kennarar í FNV hefðu bara slaufað tímanum hehe. Svo var ég svosem ekkert mikið að ræða um fyrirlesturinn við kennarann þar sem einbeitingin fór mestu í að reyna að hlusta á hann tala, talaði soldið hratt en ég skildi nú flest og fékk glærur svo ég ætti að vera í góðum málum. Næsti tími eftir 2 vikur svo það verður spennó að sjá hvort ég mæti aftur ein þá Svo á að skila heimaprófi 2 apríl, skrifa 6-10 bls. um e-ð ákveðna bók sem við höfum lesið...spurning hvernig mér tekst að skrifa þetta allt á sænsku.. Gamla settið er að koma til mín eftir aaaðeins 20 daga og hér er alveg farið að telja niður sko! Hlakka ekkert smá til að fá þau, versla með múttu, kíkja til Köben og Malmö og svona...og sýna þeim stórbæinn Lund. Jæja er þetta ekki orðið ágætt..kannski spurning um að fara að drífa sig í háttin bara þar sem ég vaknaði svo snemma í morgun eða um 5 og sofnaði lítið aftur! Kv.úr veikindabælinu í Lundi P.S ég er að spá í að gera eins og Lilja og hafa reglu; það verða ALLIR að kommenta sem koma og skoða... kommentin eru það sem heldur manni gangandi við að blogga KOMA SVO!!!
»
13.02.2008 21:12:46 / Anna Ragna
Jæja, löngu komin tími á mig!! Ég bara
hreinlega man ekki hvað hefur gerst síðan síðast í smáatriðum
en svona svo við stiklum á stóru
Byrjaði í félagsfræðikúrs og það gengur svona..hef bara að vísu
mætt í einn tíma því þetta er bara annan hvern miðvikudag frá 9-3.
Er samt búin að lesa tvær heilar bækur þannig að....ég að vísu skil
ekki hvert einasta orð en svona samhengið. Veit samt ekkert hvernig
þetta endar hvort ég tek próf eða hvað..iss það kemur í ljós
bara
Ég er nýkomin heim frá Árósum en ég fékk vikufrí(ég á svo
æðislega fjölskyldu!! ) til að hitta vinkonur mínar, Söndru
og Söru, sem ætluðu að skoða skóla í Árósum og versla og svona.
Náði í þær á Kastrup á mánudeginum 4 feb og við tókum lestina saman
til Árósa. Byrjaði ekki vel því við lentum á Silent Zone í lestinni
(og ferðin tók btw 3 tíma!!!) Við héldum fyrst að það væri bara
engin að tala í okkar klefa því það væru allir að ferðast einir en
svo kom kellingin sem sér um miðana og sagði okkur að það mætti
ekki tala hérna..svo við þurftum að gjöra svo vel að halda kjafti í
3 tíma og sjitt það var erfitt, líka þar sem ég var ekki búin að
sjá þær í langan tíma! Allavega í Árósum gistum við hjá Elín
Maríu systur Söndru, kíktum í búðir alla dagana held ég nema einn
eða e-ð!, heimsóttum Lilju og Jón Heiðar í litlu sætu íbúðina
þeirra og kíktum svo á íslendingaþorrablót sem var ógeðslega gaman!
Hitti þar Ragnar Pál og Arnlaugu og nokkra króksara..bara fjör Og
daginn eftir var bara letidagur eins og hann gerist bestur, vídjó,
nammi og bara leti útí eitt. Buðum reyndar Jóni og Lilju í mat um
kvöldið og þá var tekin "mössun" á þetta og þrifið og eldað á
mettíma Sara kom svo með mér á mánudaginn til Lundar og gisti
hérna tvær nætur og fór bara í morgun. Við skoðuðum kirkjuna,
bæinn, nokkrar búðir (en versluðum ekkert eilla, vorum alveg búnar
að versla nóg!) og gerðumst svo menningarlegar og kíktum á safn
hérna í Lundi sem ég vissi ekki einu sinni að væri til..hehe og svo
bý ég hérna..enda var Sara dáltið hneyksluð á mér
Krakkarnir litlu (þ.e.a.s þríbbarnir) eru búin að vera veik síðan
á fimmtudaginn í síðustu viku með bara ælupesti og
niðurgang..agalegt fjör. Og þau eru svo nýbúin að vera með
ógeðslega ælupesti enda ætlaði ég ekki að trúa því þegar ég heyrði
í Níní á föstudaginn þegar hún sagði að það væri smáá ælupesti. En
við Sara létum það ekkert á okkur fá og fórum bara samt til Lundar
á mánudeginum..ég vona bara að Sara sleppi
M&P eru að koma til mín 26 mars í nokkra daga Hlakka ekkert
smá til að fá þau, pabbi er að fara á e-n kúrs í Kristiansstad sem
er næsti bær hérna við svo ætli við mamma tökum ekki bara smá
búðarráp á þetta Sona ef ég þekki múttu rétt allavega þá verður
aaaðeins verslað
Er að setja skrilljón myndir frá Dk ferðinni og þorrablótinu inná
facebook svo endilega kíkið á það
..until next...
»
29.01.2008 12:19:19 / Anna Ragna
Var búin að skrifa heilan helling þegar allt helv...datt út! Þarf greinilega að muna copy-paste....
blogga seinna!!!
»
16.01.2008 10:27:59 / Anna Ragna
Þessi fyrsta vika mín hérna í Lundi hefur bara verið eins og bíómynd!! Hún byrjaði náttla með því að allir litlu gríslingarnir urðu veikir sama kvöld og ég kom og fóru ekki í leikskólann fyrr en á miðvikudeginum. Á miðvikudaginn var Kiddi komin með ælupestina og fór ekki í vinnuna á miðvikdeginum en átti svo frí á fimmtudeginum. Níní skrapp til DK að sækja Jóhönnu (dóttir Bryndísar) á fimmtudagskvöldið en við ætluðum að passa yfir helgina. Hún kom svo til baka á seinnipartinn á föstudeginum. Ég passaði krakkana þangað til Níní kom aftur því Kiddi var farin í vinnuna. Jæja þá byrjaði fjörið!! Þórdís Magnea ælir, og ekkert smá!!, svo ég mátti skipta um föt á henni og setti fötin hennar í þvottavélina þegar hún ælir aftur! Ég hringi í Níní sem var þá á leiðinni hingað yfir aftur svo ég þurfti ekki að bíða lengi. Hún ældi greyið á 5-15 mín fresti frá 4-10!! Það var hræðilegt að heyra í henni greyinu. Jæja svo á laugardeginum var hún nú orðin betri en á miðnætti( á laugardeginum) tók Sverrir Þór við og ældi, líkt og ÞM, á 5-15 mín fresti greyið. Kl. hálf tvö byrjar Jóhanna að æla svo Kiddi og Níní voru bara niðri með SÞ og Jóhönnu. Foreldrarnir náttla mjög ósofin svo ég vakna um hálf átta og fer niður með þríburana og gef þeim að borða og sendi þau og Sverri Þór upp að sofa. Kl 9 byrjar svo Margrét Brynja og ælir allt út svo ég vek Níní sem kemur niður og hjálpar mér, klukkutíma seinna byrjar svo Jónas Breki svo Kiddi þurfti líka að koma niður og hjálpa til. Svo á tímabili voru 4 börn ælandi, æðislegt alveg Enda var húsið eins og stríðsvöllur, dót út um allt, lak yfir öllum sófanum því við þurftum að þvo utan af pullunum og svo sátu við með börnin í fanginu og skál nálægt. Jæja svo um 3 á sunnudeginum voru allir sem betur fer allir hættir að æla. Sama kvöld byrjar svo Níní að æla og var bara hálf slöpp. Svo æltuðum við nú að senda allt litla gengið í leikskólann þegar Jónas Breki ælir yfir allt eldhúsgólfið svo við þorðum heldur ekki að senda Margréti Brynju í leikskólann svo ákveðið var að senda bara Þórdísi Magneu því hún var löngu hætt að æla en svo mátti hún ekki koma í leikskólann af því að það var ælupesti að ganga á heimilinu. Þau fóru því ekki heldur í gær, fyrsti dagurinn í dag bara! En ég hef ennþá sloppið við æluna, ég er greinilega frekar ónæm því þessi ælupesti var ógeðsleg..eða þá að ég hef e-n stálmaga, fann að vísu fyrir smá óþægindum í maganum á þriðjudaginn en lagði mig í tvo tíma og var bara miklu betri eftir það! Jæja en yfir í allt annað( ekki skemmtilegt að lesa bara um ælur!!) þá er ég orðin "einstæð tveggja barna móðir" í þrjá daga Níní fór í dag til Íslands því hún er að fara að byrja í skólanum og tók Sverri Þór og Þórdísi Magneu með sér svo er Kiddi á ráðstefnu og kemur ekki fyrr en seinipartinn á föstudaginn. Svo ég er ein með Jónas Breka og Margréti Brynju þangað til. Níní kemur svo með hin á mánudagsmorguninn. Þetta leggst samt bara ágætlega í mig ,ég kíki með þau á róló eða í mollið eða e-ð svona til að brjóta upp daginn Ágætt að vera aðeins búin að æfa sig hehe... Skráði mig í félgasfræði í háskólanum hérna í kúrs sem fjallar um fjölskyduna og samfélagið í breytingum. Veit svo sem ekkert hvað ég er að fara út í, í versta falli hætti ég bara ef þetta er alveg ömurlegt en ég ákvað að prófa þetta bara, hafa e-ð annað að gera en bara passa Þetta byrjar á mánudaginn og ég er bara einu sinni í viku, á miðvikudögum. Svo fannst mér þetta líka bara svona ágætt til að hafa á CV-inu mínu fyrir háskólaumsóknina heima Talandi um það þá opnar fyrir umsóknum í KHÍ 16 feb og ég hlakka bara nokkuð til, hef verið að skoða kúrsana sem er boðið upp á núna á vorönninni og þeir eru bara soldið spennandi..svo vonandi kemst ég inn í haust Sara og Sandra Dögg eru að koma til DK 4 -13 febrúar og ég ætla að hitta þær e-ð. Hlakka rosa til að hitta þær..get meira að segja fengið bara frí alla þessa viku sem þær eru hérna sem er geggjað!! Svo Sara ef þú lest þetta þá þarf ég að fara að heyra í þér í sambandi við þetta allt saman Ég sagði í síðasta bloggi að krakkarnir væru farin að tala soldið..það koma ný orð bara á hverjum degi liggur við og er Þórdís Magnea búin að læra að segja Anna..var ótrúlega ánægð hehe Svo syngja þau rosalega mikið. Fórum með þau í mollið í gær og þau voru æði..löbbuðu öll þarna um og leiddust svo, hlógu, sungu og spjölluðu heilmikið..ótrúlega sætt Jæja ég held ég segi þetta gott í bili, orðin ágætis langloka hjá mér held ég bara! Endilega svo kommenta, svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með manni ...later.. Anna - einstæð tveggja barna móðir
»
09.01.2008 09:42:17 / Anna Ragna
..eftir æðislegan tíma heima á Króknum er ég komin aftur út til Lundar. Það var æði að koma heim aftur og hitta alla, familíuna og vini. Djammaði nokkuð á þessum 19 dögum sem ég var heima. Svo notaði maður líka jólafríið í Prison Break og Næturvaktina (sem allir eru að tala um heima og nota frasana úr þeim óspart!) Algjörir snillaþættir samt! Allavega kom ég hingað á sunnudaginn og bara beint í fjörið! Því sama kvöld og ég kom voru allir litlu gríslingarnir orðnir veikir takk fyrir takk!! Svo þau fóru ekki í leikskólann á mánudaginn og í gær en fóru svo í dag og voru svo fegin að komast út úr húsinu óg fá að leika sér úti! Kiddi er á næturvaktaviku núna þannig að hann vinnur mánudag, miðv.dag og föstudag-vinnur semsagt frá 4 á daginn til 8 morguninn eftir svo við Níní erum heima með börnin frá þeim tíma. Krakkarnir eru orðnir svo stórir finnst mér og þau eru farin að tala smá, oftast bara e-ð bull en orð eins og mamma, pabbi, takk, meira, epli og fleira er komin hjá þeim. Ótrúlega gaman að sjá það og bara sjá hvað þau er orðin dugleg að leika sér. Fínt að koma aftur hingað út, en það var þó erfiðara að kveðja í þetta skiptið ení því fyrra! Samt er svosem ekkert sem bíður manns heima þannig lagað, hvort eð er allir farnir að vinna, í skóla eða þess háttar aftur og engin er í fríi. Svo verður þetta örugglega svo fljótt að líða að ég verð komin heim áður en ég veit af! Jæja ætlaði bara að láta aðeins í mér heyra og þætti alveg vænt um eina línu frá ykkur heima..bara svona svo maður viti hverjir eru að fylgjast með og lesa Kveðjur úr Lundi
»
27.12.2007 20:19:46 / Anna Ragna
Þessir dagar einkennast af leti. Maður bara sefur, étur, horfir á tv, étur ennþá meira, sefur og étur og sefur..og svo er nú líka pláss fyrir smá djamm líka hehe. Ég alveg elska jólin..bara njóta tímans með familíunni og hanga bara...spila saman eða bara horfa á e-a mynd í tv. Ohh þetta er bara æði! Ótrúlega gaman að koma heim og hitta alla. Þó ég sakni nú litlu krílanna í Svíþjóð sko...En heima er nú samt best hehe. Annars héldum við Inga og Vala ammælið okkar á laugardaginn og var þema Celeb. Algjör snilld. Flestir mættu nú í búningum. Setti inn myndir á Facebook. Jæja held ég segi þetta bara ágætt hérna...ætlum að hittast nokkrar vinkonur í kvöld og bara spjalla...kannski maður aðeins hafi sig til.. ..later..
»
17.12.2007 07:40:53 / Anna Ragna
Síðustu dagar hér í Lundi hafa bara verið ansi fínir. Á fimmtudaginn fór ég yfir til Köben með lestinni um hádegisbil. Þar hitti ég Patsy frænku og eyddum við deginum þar. Við löbbuðum Strikið og skoðuðum allar æðislegu jólaskreytingarnar..oo þær voru æði! Fórum svo niður á Nyhavn og fengum okkur samloku og með því..ægilega gaman og jólastemmningin var svo skemmtileg...fullt af básum niðri á höfn og spiluð jólalög...þá komst maður nú í smá fíling!! Held að þetta sé bara algjört möst hér eftir..að fara til Köben rétt fyrir jólin, klára jólainnkaup eða bara fara til að upplifa smá stemmningu! Patsy hafði aldrei áður komið til Köben og var þvílíkt heilluð af borginni Við fórum svo með lestinni yfir til Lundar um kvöldið og hún gisti hér. Kíktum í miðbæinn hér daginn eftir og hún náði að versla smá og var samt með alveg nógu mikla yfirvigt síðast!! Skutlaði henni svo bara á lestarstöðina um 3 leytið. Á föstudeginum var ég boðin í smá partý heim til Ragga og Margrétar Silju en hún var að klára próf svo hún ákvað nú að halda upp á það kellan! Borðuðum geggjaðan mat...brúnaðar kartöflur, sveppasósu og hrygg..mmmm...og hlustuðum á íslensk jólalög...kom manni enn þá meira í fílinginn Svo kíktum við, Margrét Guðmunds, Hanna (sænsk vinkona MS) og Karina (líka sænsk vinkona) á e-n stúdentastað. Held samt að það hafi bara verið karlakvöld því það voru bara strákar þarna. En guð minn góður sænskir drengir eru EKKI góðir dansarar, þeir mega eiga það að þeir eru sætir en dansinn er ekki alveg að gera sig. Einn strákur var nú e-ð að vonast eftir að ég myndi nú vilja hann og svo byrjaði gaurinn að dansa; jesús minn!! Ég bara stóð þarna og hló...en svona er þetta maður getur nú ekki verið góður í öllu haha. Kannski Inga Birna komi hingað og kenni þeim að dansa Laugardagurinn rann svo upp bjartur og fagur (hann var það í alvöru!) en ég svaf það allt af mér og rumskaði ekki þegar Níní, Kiddi og krakkarnir fóru út. En þau fóru í jólatrésleiðangur og eru búin að kaupa þetta fína tré. Svo skruppu þau í Ikea og á meðan var ég hér heima og passaði krakkana en þau sváfu. Ég notaði tækifærið og pakkaði inn jólagjöfunum handa liðinu, setti Frostrósir á fóninn og þá komst maður sko í jólaskapið!! Kvöldið fór svo í rólegheit bara, horfðum á Borat og þvílík rugl mynd!! Á sunnudaginn (í gær) fórum við Níní yfir til Köben með krakkana, en Kiddi var að vinna. Kristjana systir hennar,börnin hennar og mamma hennar komu nebbla á laugardaginn. Við fórum til Bryndísar og Ömma, fórum svo niður í bæ, hittum Snæbjörn bróðir Níníar þar en hann ætlar að vera hér um jólin líka eins og öll familían hennar! Kíktum í tívolí og það er svo flott þarna yfir jólatímann..bara æði..ljósin og allt bara!! En það var helv...kalt!! Komum svo til baka um kvöldið bara. Í dag er svo síðasti dagurinn í Lundi, í bili. Dagskráin er nokkuð þétt; þrífa herbergið (búin að því að vísu, skellti mér bara í þetta núna og kl. rétt að verða hálf níu), fara í búðina með Níní en ég ætla að sjá um eftirrétt í kvöld, fara niður í háskóla og tala við e-a konu í sambandi við spænskuna..athuga hvort ég komist inn og svona , svo aðeins niður í bæ og athuga með Segemyhr dvd diska handa þeim heima..þeir eru æði! Svo náttla að pakka niður...nú er að vona að ég komi öllu draslinu mínu fyrir!! Í dag er svo líka merkilegur fyrir þær sakir að ég er 20 ára í dag hvorki meira né minna!! (og má þess vegna fara með smáá áfengi í gegnum tollin á morgun, haha allt planað sjáiði til ) jább, maður orðin tvítugur og loksins má maður fara í ríkið Nú er maður ekki lítill lengur hehe.. Er líka búin að fá ammælisgjöf frá Lundargenginu, geggjaða hvíta kápu! Nú verður maður pæja Á morgun er svo heimferðardagur en ég og Íris (vinkona Níníar) og stelpan hennar erum að fara í sama flug svo við ákváðum að vera bara samfó..agalega fínt! Förum með lestinni á morgun um 9, mættar út á völl um 10 og tjékka okkur inn, flugið fer svo korter yfir 12 (þ.e.a.s ef veður og annað leyfir!!) og á svo að lenda á morgun um hálf þrjú og ætlar Alli bró að ná í mig. Sjitt ég get ekki beðið eftir að sjá alla, familíuna, vinina og Vidda minn!! Koma svo heim í Lerkihlíðina og halda upp á jólin, jólin í Lerkihlíð eru engum lík. En við förum ekki á Krókinn fyrr en 19 eða 20. Svo þegar heim er komið er klipping og litun og plokk+lit á dagskrá. Mikið hlakka ég til að fá andlit haha!! Svo á laugardeginum 22 des er náttla ammælið okkar ingu og völu „60“ ammæli Jæja segi stopp hér. Ætla að fá mér smá beautyblund og drífa mig svo í sturtu og svona. Sjáumst á morgun!! ...later...
»
02.12.2007 11:25:29 / Anna Ragna
Fékk stöðmælasekt á föstudagskvöldið og enga smá sekt!! Þannig var að Margrét Silja og Raggi buðu mér í mat á föstudagskvöldið en þau búa á stúdentagörðum hérna í Lundi. Allsstaðar hérna í Lundi þarf að borga fyrir bílastæði og meira segja á stúdentagörðunum sjálfum. Allavega fékk ég bílinn lánaðan og ákvað að leggja bara hjá ICA (sem er matvörubúð og rétt hjá stúdentagörðunum). Hef áður lagt þar og ekki fengið neina sekt en bílinn stóð þar í þrjá eða fjóra tíma svo ég bara tek sjénsinn aftur því það er hvort eð er engin annar staður þar sem ég gat lagt. Jæja ég var hjá þeim í alveg fjóra tíma, horfðum á Idolið og kíktum svo á kaffihús niðrí bæ og vorum komin heim til þeirra aftur um 12 leytið. Ég var búin að spyrja Margréti Silju hvort ég hafi nokkuð fengið sekt hún segir; neinei örugglega ekki, kl 12 á föstudagskvöldi, ég efast um það. Jæja svo kem ég að bílnum og neinei var þá bara ekki e-r miði á bílrúðunni og ég hugsa; ooo, vonandi ekki há sekt. Svo lít ég á miðann og þar stendur 600 kr sænskar sem eru 6000 kr íslenskar!!! Ég bara átti ekki til orð, sex þúsund krónur takk fyrir! Skýring var að það var bannað að leggja þarna...held það sé nú ekkert bannað að leggja þarna en það þarf greinilega að borga!! (og ég hef ekki tekið eftir því að það þurfi að borga) En ég læri nú allavega af þessu, nú verður ekki komið meira á bíl heim til þeirra hehe, bara hjólið góða Þannig að nú er ég 6000 þús krónum fátækari. Kíktum á 1 des skemmtun í gær sem íslenski kórinn hérna í Lundi heldur árlega. Það var bara ágætis skemmtun þó svo að maður þekkti nú ekki marga. Kiddi og Níní fóru á undan mér heim en ég fór aðeins seinna með Írisi vinkonu Níníar og vinum hennar. Annars er svo sem ekki mikið að frétta af mér, bara það sama. Búin að versla nánast allar jólagjafir, á bara smááá eftir. Ótrúlega gott að vera búin að þessu. Svo kem ég bara heim eftir 2 vikur og hlakka svoooo til Jæja segi þetta gott hér.. ...later...
»
20.11.2007 18:33:34 / Anna Ragna
Jæja komin tími á smá news.
Allt gott að frétta úr Svíaríkinu svosem.....Kristjana systir
Níníar komin og farin, þá kom Stína systir Kidda og mamma hans sem
var leynigestur!! Níní hélt að hún fengi hjartaáfall á
flugvellinum, hún hélt hún væri bara að ná í Stínu og stelpuna
hennar hehe. Krakkarnir hætta bara ekki að brosa eftir að amma
þeirra kom, það var svo mikið fjör þegar hún var að baða stelpurnar
á miðvikudaginn að við héldum að þær myndu bara drukkna og
vatnsgusurnar voru bara upp í loft Hún fer aftur heim á
þriðjudaginn og þá koma eldri stelpan hennar Stínu og maðurinn
hennar.
Annars lenti ég í smá óhappi (aftur!!) um daginn. En þannig er að
innkeyrslan hérna er fáránlega lítil og þröng og sitthvoru megin
við hana er ljósastaur (sem er bara alveg við innkeyrsluna!!) og
ruslatunnarnar eru með smá grindverki í kringum. Og við erum náttla
ekki alveg á minnsta bílnum!! Níní er búið að takast að rekast
utan í ljósastaurinn og færa hann aðeins til og líka í grindverkið.
Jæja allavega þá var ég að fara að keyra Stínu og Tótu í
mollið og er að bakka út en gerði mér ekki alveg nógu mikla grein
fyrir því hvað ég þyrfti að taka mikið á bílnum og áður en ég vissi
af heyrði ég smá svona; pomm. Á því augnabliki bölvaði ég sjálfri
mér og vonaðist svo innilega til að ég hefði ekki bakkað á
bílaskýlið hjá húsinu sem er á móti okkur!! Svo fer ég út og jújú
þá rak ég stuðarann í grindverkið en það sér voðalítið á
grindverkinu (eignlega bara ekkert) og aðeins á bílnum..sem betur
fer ekkert svo alvarlegt!! Níní og Kiddi tóku sem betur fer bara
vel í þetta og sögðust alveg skilja þetta, þessi bílastæði
eru náttla bara fáránlega þröng!! Grínuðust fyrst með að ég yrði
bara að vera ár í viðbót hjá þeim til að bæta þetta upp En vá ég
meina það, ég er seinheppnasta manneskja í heimi!! Frábært Anna
Ragna, alveg laglegt!
Annars kíktum við Níní og Rakel vinkona hennar í mollið í dag.
Keypti mér geðveik stígvél sem eru rauð..bara geggjuð!! Voru á
útsölu hehe....Náði svo að versla jólagjafir handa þeim litlu og
eina afmælisgjöf. Talandi um þessar jólagjafir þá er ég ekki frá
því að ég er að komast í smáá jólaskap. Að vísu er engin snjór
hérna og hef svosem ekki heyrt nein jólalög hérna ennþá en ég veit
ekki hvað það er...kannski piparkökurnar sem Níní keypti um
daginn Jú og svo jólagjafirnar..
jæja segi stopp hér og sjáumst eftir mánuð á
klakanum
..until next..
»
06.11.2007 20:36:15 / Anna Ragna
Jæja, komin 6 nóvember!! Er varla að
trúa þessu, finnst ég svo til nýkomin hingað og svo er maður
bara að koma heim í jólafrí í NÆSTA mánuði! Hlakka rosalega til
að sjá alla, koma í íslenska loftið og komast í snjóinn. Hér er
enginn snjór en ógeðslega kalt orðið!! Þakka fyrir að ég hafi nú
komið með lopapeysuna góðu hingaðJ
Annars er allt gott að frétta af mér, eins
og vanalega bara. Svo sem ekkert nýtt að frétta af mér, bara sama
gamla, koma krökkunum í leikskólann, sækja þau, gefa þeim að borða
og fleira. Svo þess á milli er verslað...nú þarf maður að fara að
versla fyrir jólin!! Kíktum einmitt í Nova Lund á laugardaginn, ég
og Níní, ætluðum nú bara rétt að skreppa inn og kaupa afmælisgjafir
því við fórum í tvö barnaafmæli á sunnudaginn. En það var svoleiðis
stappað af fólki og langar biðraðir að afgreiðslukössunum, alveg
greinilegt að jólin eru á næsta leiti. Enda svíarnir þekktir fyrir
það að vera mjög skipulagðir, ekki eins og íslendingarnir sem kaupa
jólagjafirnar á þorláksmessu, nánastJ Annars er maður nú alveg farin að hugsa um þessar gjafir,
hvað á að gefa hverjum og svo frv. Var að ræða við múttuna í gær um
þetta og hún er nú ekki einu sinni farin að hugsa svo langt og
sagði bara að ég væri orðin svo sænskJ
Annars skelltum við Níní, Íris (vinkona
Níníar) og Margrét Silja á djammið á laugardaginn f. tveimur vikum
sirka. Margrét Silja var reyndar bara að keyra okkur en kíkti samt
með okkur niður í bæ í smá stund. Allavega var þetta svona bara
spontant djamm og við Níní búin að fá okkur rauð-og rósavín með
matnum um kvöldið...og vorum orðnar ágætarJ Vorum kannski meira að drekka þetta eins og bjór heldur
en að sötra..Jæja hvað um það. Þetta var bara ágætis kvöld og maður
gat nú talað smá sænsku skoJ Fékk einmitt hrós hvað ég talaði góða sænsku
hehe...Allavega þá erum við á leiðinni heim og ég misstíg mig svona
rosalega og get ekki stigið í löppina þannig að Níní og Íris þurftu
að styðja við mig! Þegar við komum heim, vakti Níní Kidda sem kíkti
e-ð á löppina mína og setti svo teygjubindi á
hana. Það borgar sig nú stundum að hafa læknir á heimilinu! Hann
sagði nú að ég væri bara tognuð. Þegar ég svo
vaknaði um morguninn gat ég ekki stigið í hana og var að drepast
bara. Var bara haltrandi og ég sem ætlaði út að hlaupa daginn
eftir!!! En ég er nú orðin góð núna og marið er svona hægt að
rólega að fara en ég fékk rosalegan marblett!!
En þetta er ekki búið, óheppnin eltir mig
á röndum, ég get svo svarið fyrir það! Svo vorum Níní að hjóla í
leikskólann til að sækja krakkana um daginn og ég flaug svona
skemmtilega á hausinn á hjólinu beint fyrir framan leikskólann!
Þannig var að ég ætlaði að fara upp á kantsteininn en var á aðeins
meiri ferð en ég gerði ráð fyrir og flaug bara af hjólinu. Níní var
komin aðeins á undan mér og heyrði bara skrans og læti fyrir aftan
sig. Sem betur fer var bara ein kona sem sá mig, þegar ég lá þarna
í gangstéttinni hlægjandi!! Það endaði samt vel sko, fékk smá
rispur á löppinaJ En ég meina það, ég get verið svo seinheppin að það er
ekki eðlilegt...allir svosem orðnir vanir þessu held
ég..hehe
Sverrir Þór á afmæli í dag, er 4 ára
strákurinn. Var vakinn í morgun og fékk pakka frá mömmu sinni og
pabba og frá mér. Hann fékk gítar frá m&p og var þvílíkt
ánægður með hann, spilaði endalaust á hann í morgun, og í bílnum á
leiðinni á leikskólann og fékk svo að hafa hann með sér á
leikskólann í dag..algjör dúlla. Frá mér fékk hann svo Leiftur
Mcqueen handklæði og bol. Fórum á Mcdonalds í kvöld í tilefni
dagsins og fengum burger og ísJ. Svo er afmælisveislan á sunnudaginn og eru 40 manns sem
koma í hana, hvorki meira né minna!! Svo það verður heldur betur
fjör þá.
Jæja segi þetta gott hér...kannski maður
bara skelli sér upp í rúm fljótlega og fari að sofa snemma svona
einu sinniJ
..later..
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|