..eftir æðislegan tíma heima á Króknum er ég komin aftur út til Lundar. Það var æði að koma heim aftur og hitta alla, familíuna og vini. Djammaði nokkuð á þessum 19 dögum sem ég var heima. Svo notaði maður líka jólafríið í Prison Break og Næturvaktina (sem allir eru að tala um heima og nota frasana úr þeim óspart!) Algjörir snillaþættir samt!
Allavega kom ég hingað á sunnudaginn og bara beint í fjörið! Því sama kvöld og ég kom voru allir litlu gríslingarnir orðnir veikir takk fyrir takk!! Svo þau fóru ekki í leikskólann á mánudaginn og í gær en fóru svo í dag og voru svo fegin að komast út úr húsinu óg fá að leika sér úti!
Kiddi er á næturvaktaviku núna þannig að hann vinnur mánudag, miðv.dag og föstudag-vinnur semsagt frá 4 á daginn til 8 morguninn eftir svo við Níní erum heima með börnin frá þeim tíma.
Krakkarnir eru orðnir svo stórir finnst mér og þau eru farin að tala smá, oftast bara e-ð bull en orð eins og mamma, pabbi, takk, meira, epli og fleira er komin hjá þeim. Ótrúlega gaman að sjá það og bara sjá hvað þau er orðin dugleg að leika sér.
Fínt að koma aftur hingað út, en það var þó erfiðara að kveðja í þetta skiptið ení því fyrra! Samt er svosem ekkert sem bíður manns heima þannig lagað, hvort eð er allir farnir að vinna, í skóla eða þess háttar aftur og engin er í fríi. Svo verður þetta örugglega svo fljótt að líða að ég verð komin heim áður en ég veit af!
Jæja ætlaði bara að láta aðeins í mér heyra og þætti alveg vænt um eina línu frá ykkur heima..bara svona svo maður viti hverjir eru að fylgjast með og lesa
Kveðjur úr Lundi