Enginn er verri þótt hann hrasi!;)
05.03.2008 20:49:57 / Anna Ragna

Enn og aftur veikindi!!

Jæja komin mars sem þýðir að ég er búin að vera hérna í næstum fimm og hálfan mánuð!! Ótrúlega fljótt að líða – ég verð komin heim áður en ég veit af sko!

Annars gengur lífið hérna í Lundi bara þokkalega nema hvað að hér eru veikindi í gangi-hvað er málið með þessi veikindi!? Þórdís Magnea og Jónas Breki voru komin með hita á sunnudaginn og eru bæði rosalega kvefuð og hósta alveg út í eitt- sérstaklega Þórdís Magnea..alveg hræðilegt að heyra í henni.  Og þegar svona veikindi eru í gangi þá segir sig oftast sjálft að þá eru næturnar frekar erfiðar...ég og Níní sváfum lítið á sunnudagsnóttina, ég var vöknuð fyrst kl. 5 og svo vaknaði ég annað slagið eftir það og hjálpaði Níní að sinna börnunum en Kiddi var á næturvakt. Nóttin í nótt var líka svona frekar erfið..greyið ÞM hóstar svo svakalega alla nóttina og nær e-n vegin ekkert að festa kannski alveg svefninn. MB var vöknuð kl. 6 og sofnaði ekkert eftir það en var samt rosa góð og lá bara hjá Níní, JB vaknaði upp úr sex og vildi bara mömmu sína en ég tók hann bara inn til mín og þar kúrðum við okkur saman og hann svaf þar til að verða níu í morgun!! SÞ vaknaði kl hálf sjö og sofnaði ekkert aftur. Semsagt næturnar hafa gengið frekar illa undanfarið, Níní greyið vakir fram á nætur og lærir – er að 2 stór hópaverkefni núna en vonandi fer þetta allt að lagast. Stefnan er að setja JB á leikskólann á morgun en ÞM fer örugglega ekkert þessa vikuna, er svo slöpp.

Við eldri deildin höfum alveg sloppið við veikindi þennan umgang..enda engin pesti svosem í gangi núna. Ég hef sem betur fer sloppið við allar þrjár ælupestirnar sem eru búnar að vera hérna frá því í des! Maður er svo helv...hraustur:)   Best kannski að vera ekkert of mikið að tala  um það...það gæti endað með því að maður fengi e-a pestina. Vonandi eru samt þessar pestir búnar fyrir árið!!

Ég alveg iða í skinninu núna mig langar svo að kaupa barnaföt!! Hehe, Guðbjörg og Teddi ( sem búa í næsta húsi við okkur) voru að eignast stelpu þann 28 feb svo ætli maður kíki ekki við í Nova við tækifæri og kaupi e-ð handa litlu dömunni, sem fékk nafnið Auður Margrét. Svo er stutt í að Helga frænka eignist sitt þriðja barn sem ég held að sé stelpa- það er nóg komið af strákum í þessari ætt...jii ég get ekki beðið eftir að fara í Kappahl, HM og Lindex og kaupa sæt barnaföt..til svo ótrúlega mikið af þeim hérna!!

Mætti í skólann í dag. Tíminn átti að byrja 10 en ég var EIN mætt kl. 10 og hugsaði með mér að annað hvort væru bara allir hættir í þessum kúrs eða þá að allir væru seinir fyrir- m.a.s kennarinn var ekki mættur!! En jújú svo kom hann og ég settist inn í stofu og við biðum og biðum og hann sp. mig hvort það komi ekki örugglega fleiri, ég vonaði það..hálfhallærislegt að vera ein þarna. Kennarinn ákvað bara að skreppa út og fá sér eins og eina sígó og koma svo aftur. Á meðan hann fékk sér „fresh air“ gerðist ekkert..enginn kom! Jæja haldiði að mín hafi ekki bara verið ein þarna og hann hélt fyrirlestur sem ég ein hlustaði á!! Þetta var svosem alveg fínasti fyrirlestur en ég hef bara aldrei lent í öðru eins, vera bara ein í tíma að hlusta á fyrirlestur-held að flestir kennarar í FNV hefðu bara slaufað tímanum hehe. Svo var ég svosem ekkert mikið að ræða um fyrirlesturinn við kennarann þar sem einbeitingin fór mestu í að reyna að hlusta á hann tala, talaði soldið hratt en ég skildi nú flest og fékk glærur svo ég ætti að vera í góðum málum. Næsti tími eftir 2 vikur svo það verður spennó að sjá hvort ég mæti aftur ein þá:) Svo á að skila heimaprófi 2 apríl, skrifa 6-10 bls. um e-ð ákveðna bók sem við höfum lesið...spurning hvernig mér tekst að skrifa þetta allt á sænsku..

Gamla settið er að koma til mín eftir aaaðeins 20 daga og hér er alveg farið að telja niður sko!:) Hlakka ekkert smá til að fá þau, versla með múttu, kíkja til Köben og Malmö og svona...og sýna þeim stórbæinn Lund.

Jæja er þetta ekki orðið ágætt..kannski spurning um að fara að drífa sig í háttin bara þar sem ég vaknaði svo snemma í morgun eða um 5 og sofnaði lítið aftur!

Kv.úr veikindabælinu í Lundi

P.S ég er að spá í að gera eins og Lilja og hafa reglu; það verða ALLIR að kommenta sem koma og skoða... kommentin eru það sem heldur manni gangandi við að blogga:) KOMA SVO!!!

Þuríður skrifaði
hæhæ, leiðinlegt að heyra með þessi veikindi :/ en vonandi fer þetta að verða búið hjá ykkur!

Hafðu það gott og við heyrumst fljótleg :)

kv. Þuríður
Helga Lára skrifaði
Leiðinleg þessi veikindi alltaf..

Já ég held að FNV kennarar hefðu nú bara gefið frí..

Allavega.. búin að kvitta fyrir mig! Annað en sumir, hehe ;)

Kveðja Helga
Margrét Helga skrifaði
Ég brýt ekki reglur svo hér með er kvitt frá mér :)
Það er vonandi að öll þessi veikindi á heimilinu fari að taka enda.
Lilja skrifaði
Ég get nú ekki farið að brjóta eigin reglu... :)
Kvittkvitt - vonandi eru allir orðnir hressir
Kveðja frá Vestergade
Sara Björk skrifaði
ha ha það er alltaf stuð á þessu heimili, nauðsynlegt að börnin veikist sonna af og til svo þú hafir e-ð að gera:)
Ertu búin að kynnast fleiri söfnunum í Lundi eða þarf ég að gera aðra ferð út til þín.....he he
Anna Ragna skrifaði
hehe..nei veistu Sara mín..ég hef ekki farið á neitt annað safn sko..pabbi vildi nú að ég færi frekar með mömmu á söfn en að versla...ég hélt nú ekki!! Annars mátt þú alveg gera þér aðra ferð hingað sko:) Það væri bara gaman:)
Alli skrifaði
Ég er kvefaður...
Sólveig Ragna Jónsdóttir skrifaði
Hérna ég var að velta einu fyrir mér. Hvenær á Helga frænka að eiga?
Anna ragna skrifaði
heyrru hun er búin að eiga..átti á miðvikudaginn þriðja prinsinn!!:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.