Jæja komið að kveðjustund! Dvölin hérna í Lundi er búin. Fer með fluginu kl hálf tíu í kvöld og Árni bróðir er með mér. Vorum einmitt að pakka áðan og djöfull er hægt að sanka að sér miklu dóti og drasli, eins gott að Árni kom með tösku sem hægt var að stækka!! Jæja við vigtuðum töskurnar áðan og mín var 15 kg en Árna 19,4 haha það mátti ekki muna miklu!!
Dagskráin í dag er svosem ekki mikil bara að klára að ganga frá hérna í herberginu og svo ætla ég að fara með Níní að sækja krakkana á leikskólann...svona í síðasta skipti

Grilluðum saman hérna í gær, Guðbjörg og Teddi og Ásta og Davíð komu í mat. Svona kveðjudinner heh, horfðum svo á leikinn í gær og guð minn góður hvað þetta var stressandi, aðra eins vítaspyrnukeppni hef ég bara ekki séð en við Árni fögnuðum auðvitað vel eftir leikinn. Hringdi svo heim og þar voru allir heima hjá Auju og Bóa og það var ekki hægt að heyra neitt sko, það var allt brjálað, þau voru búin að opna rauðvín og freyðivín og ég veit ekki hvað og hvað í tilefni sigursins. Þetta var allavega mjög góður endir á Lundardvölinni.
Búið að vera ótrúlega gaman að vera hérna í Lundi og þetta er reynsla sem fer alveg í reynslubankann sko, ekki heldur á hverjum degi sem maður fær að passa þríbura

En ég kem í heimsókn aftur í haust í verslunarferð og svona

Annars er ég svo bara hætt að blogga... Sjáumst á Króknum á sunnudaginn

Takk og bless