jább, núna er ég næstum því komin með æfingaleyfi..á bara eftir að fylla út e-ð blað og fara með það á sýsluskrifstofuna og þá get ég farið að keyra á Hjondænum!!..get ekki sagt að mig hlakki til að fara að keyra á þessu ferlíki, það munar bara 2 sætum og þá þyrfti ég að hafa meirapróf! En jújú það verður örugglega bara gaman að fá að keyra Annars fór ég til Akureyrar á fimmtudaginn með Kela, Brynhildi og Sævari og það gekk bara nokkuð vel fyrir utan að ég keyrði aðeins uppá hringtorgið, fór til vinstri þegar ég átti að fara til hægri og hægri þegar átti að fara til vinstri og drap 3 á honum. Svo heyrði maður bara hlátur þarna aftur í!!....en það gekk betur í seinna skiptið... Ég meina ég var að keyra þarna í fyrsta skiptið....ég kunni náttla ekkert á þetta og ég þurfti að byrja! En það var samt eitt frekar fyndið í ferðinni. Við vorum semsagt nýkomin á Ak. og Keli var e-ð að sýna okkur hvernig er farið að á hringtorgi og bað okkur að fylgjast vel með þessum bíl þarna og benti svo á e-n bíl. Heyrðu, haldið ekki að maðurinn eða konan(sá ekki hvort kynið þetta var) keyri ekki bara á móti umferð það var geðveikt fyndið!!!..Hann mætti strætó sem var flautaði á hann bara!!...Keli bað okkur í guðs bænum að gera þetta ekki..........æji kannski var þetta bara meira had to be there moment...ég veit ekki....fannst þetta allavega frekar fyndið!
En já..helgin er komin og það verður bara lært um helgina..ekkert djamm á mér þessa helgina.....ætla að reyna að spara fram að jólum....komst að því í fyrra að þetta getur verið alveg svakalega dýrt! svo það er bara spara, spara, spara núna! Jæja..læt þetta vera nóg í bili...
...until next...
» 5 hafa sagt sína skoðun
jább þá er komin miðvikudagur.....mér líður eins og það sé bara mánudagur...en tíminn er svo fljótur að líða að það er bara ekki eðlilegt! Nú ég fór á Akureyri á föstudaginn.....nenni nú ekki mikið að skrifa um hvað var gert þar...bendi bara fólki að kíkja á síðuna hjá okkur stelpunum...www.gilsbunga.blogspot.com En á laugardeginum var haldið aftur á Akureyri, ég og Inga fórum með rútunni og vorum allan daginn að horfa á fótboltaleiki..rosa fjör...en þar sem við stelpurnar náðum ekki í lið sætti maður sig bara við að fá að horfa á..það var líka mjög gaman sko Hitti Jóu og tvíburasystur....eða þríburasystur öllu heldur hennar, Röggu. Gaman að hitta Jóu aftur..en hún beilaði á djamminu! Svo um kvöldið komu Vala, Sara og Sandra með Jóa og við skelltum okkur á Kaffi Akureyri...þar var hægt að fá sér bjór og svona...en sumir fóru bara beint í saltið og sítrónuna...hehe og aðrir voru bara rólegir og svona og fengu sér Swiss Mokka og enn aðrir vatn!!! Svo var ferðinni heitið í Sjallann á Skímó....og þar var bara tjúttað langt fram á kvöld! Já það rættist bara alveg ágætlega úr þessari ferð....Á Sunnudeginum vorum við svo boðnar í ammæli til Söru....þvílíkt góður matur og tala nú ekki um kökuna...algjört sælgæti, Betty Crooker stendur svo sannarlega alltaf fyrir sínu!
Á morgun er mín að fara að skella sér suður með félagsfræðihópnum og þar er meiningin af skella sér á Alþingi og á Þjóðminjasafnið..verður eflaust stuð þar....komum svo aftur heim á föstudeginum, sennilega um kvöldmatarleytið...
Já by the way þá er ég búin að fá út úr öllum prófunum nema sögunni, býst nú ekki við að fáum það strax...Helgi greyið er alltaf svo seinn í þessu öllu saman!...Hann datt líka í það um helgina...já þetta er maður að heyra....já þessir kennarar eru nú stundum hressir...hehe
Jæja læt þetta gott heita í bili...
.....þangað til næst...
» 1 hafa sagt sína skoðun
já, núna getur maður andað léttar! prófin loksins búin og þau gengu bara svona þokkalega vel Framundan er svo Akureyrarferð með stelpunum, sennilega á föstudaginn og svo á laugardaginn þarf ég aftur að fara til Akureyrar og þetta skiptið að keppa með skólanum í fótbolta, það verður vonandi stuð, aldrei að vita nema maður skelli sér í Sjallan á Skímó Svo hef ég frétt að Jóa ætlar að mæta á svæðið svo að það verður þá en þá meira stuð..hehe Í þessum rituðu orðum eru okkar ástkæra landslið að tapa 2-0 fyrir Svíjum, get ekki annað en glott við tönn....maður er nú ennþá soldill svíi í sér þó svo að maður búi ekki þar lengur og já by the way: http://www.gilsbunga.blogspot.com ......rosaleg síða, tjékkið á henni
Jæja nóg af bulli í bili.....
....later...
» 2 hafa sagt sína skoðun
jæja er ekki komin tími á nýtt blogg?? neeee, ekki strax...er í prófalestri núna svo það gengur fyrir!!.........annars er bara allt gott að frétta, kem kannski með e-r fréttir af mér eftir helgi og segji frá því hvernig gekk í prófunum!! En kannski ég skelli inn nýrri könnun, þessi er búin að vera aaaaðeins of lengi
.....þar til næst..