Enginn er verri þótt hann hrasi!;)
30.07.2004 15:40:36 / Anna Ragna

Verslunarmannahelgin er byrjuð..!;)

*víí*! nú er verslunarmannahelgin LOKSINS runninn upp og slatti af fólki komið í bæinn, vegna landsmóts UMFÍ, fyrir þá sem ekki vita hvað er um að vera hér yfir helgina! Já ég var allaveganna að vakna núna..fékk mér smá lúr eftir vinnunna og það var mjööög ljúft!!:D og það er sko enginn heima, allir fóru bara nirrí bæ án þess að segja mér eitt eða neitt, *huff* er það nú! En ég ætla samt að labba nirrettir eftir smá stund og kíkja á þetta allt saman. En svo ég kvöld er ég að passa frá 8-12...þar sem ég er svo góðhjörtuð manneskja þá ákvað ég að gera þetta8)...hehe, neinei...æji konan vissi bara ekki hvern hún gæti fengið því það eru allir annaðhvort í burtu eða að keppa á landsmóti. En ég er svona að vona að ég megi fara með krakkanna (sem eru 3, 5 og 6 ára)nirrí bæ í kvöld að horfa á setninguna og svona!!..á bara eftir að spurja!:klikk: Svo ætla stelpurnar örugglega að gera e-ð sér til skemmtunar í kvöld en ég kem bara kl. 12 og geri e-ð þá með þeim!...því nóttin er ung, eins og einhver sagði einu sinni:P síðan veit ég EKKERT hvert planið er á morgun...eeeeen það kemur nú bara í ljós::) Jæja ég segi þetta ágætt í bili..og aldrei að vita hvort ég kem með smá pistil um helgina!!                      Gleðilega verslunarmannahelgi og akið varlega!

..later..


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2004 15:06:47 / Anna Ragna

long time no see..!

Ég hef ekki verið mjög dugleg þessa vikuna að blogga, það er búið að vera alveg nóg að gera sko! vinna, Reykjavík, vinna, Akureyri, vinna og vinna og meiri vinna.....allt brjálað! og það er sko enn meiri vinna núna þessa helgina því ég er að vinna bæði í dag og á morgun. Svo ég mátti því gjöra svo vel og vakna fyrir allar aldir til að mæta í vinnu8|....en þetta er samt allt í lagi, fyrsta helgin mín í sumar og ég geri hvað sem er fyrir peninga:klikk::D..svo vinn ég líka 14-15 águst(sem er helgi)og þá hætti ég8)....já, ég hef ekki mikið að segja sem mér liggur mikið á hjarta þannig að ég er að spá í að fá mér smá lúr og segja þetta gott í bili..vildi bara svona aðeins láta vita af mér:haha:

....until next..


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2004 19:05:07 / Anna Ragna

Sunnudagur..!

jæja, þá er enn ein helgin að verða búin...!...og aðeins 2 vikur í verslunarmannahelgi:D En ég ætla svona aðeins að segja ykkur frá helginni, hvað ég er búin að vera að bralla! föstudagurinn: fór ég vinnu kl. 8-12, fór að sofa-svaf í u.þ.b. 2 tíma, keypti skírnargjöf handa litla frænda minum, fór út að skokka með pabba, horfði á Tindastól gera einn eitt jafnteflið-að þessu sinni við ÍR, Sólveig Ragna kom í heimsókn, fór að sofa! laugardagurinn:vaknaði 7:15 vegna þess að ég var að fara að suður að keppa á móti ÍR-sá leikur gekk ekki vel-kom heim kl. 9 um kvöldið, fór til Ingu, þaðan til Kevins og þaðan heim til Bibba þar sem var smá teiti í tilefni 22 ára ammæli drengsins og síðan var bara kíkt nirrí bæ og þar var alveg slatti af fólki að djamma!...fór svo að sofa þegar kl. var að ganga hálf fimm! sunnudagurinn: vaknaði kl. 11, fór í skírnarveislu kl. 2 og var þar til kl. var að verða 6, kom heim og horfði á vídjó og hér er ég nú!.....veit ekki hvort e-ð verður gert í kvöld..kemur bara í ljós:haha: Jæja, ég hef svosem ekki mikið að segja.....eða jú, ég er að fara að byrja að vinna á morgun upp á deild 2:$..vonandi bara að það gangi vel:!:8|....hef nú ekki meira fréttir að færa ykkur, kæru lesendur(hmm..les þetta nokkur maður?8|)Segi þá þetta bara gott í bili...

...later....


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2004 14:21:38 / Anna Ragna

Landsmót..nú líður mér vel!

Jább, nú er landsmótið á enda og hversdagslífið tekið við, enn á ný...ekki það að lífið hafi verið eitthvað mikið öðruvísi á þessu landsmóti!!:lol:, sagði bara svona8)En já þetta landsmót var nú bara mjög skemmtilegt og tókst vel og ekki skemmdi fyrir góða veðrið á fimmtudag, föstudag og laugardag, bara bongóblíða en svo svona síðasta sólarhinginn fór að rigna duglega!:evil: Maður er sko bara sólbrunninn eftir þessa helgi;)Ég keppti á landmótinu í fótbolta með UMSS og ég segi bara eitt=GUÐ MINN GÓÐUR!8|....en aðal atriðið er að vera með, ekki satt? Við,UMSS, fengum samt flest stig fyrir knattspyrnuna og fengum bikar:D En hápunkturinn var nú samt ballið á laugardadskvöldið með Stuðmönnum, þetta var alveg geggjað gaman, þó svo að hljómsveitin hafi ekki alveg verið að gera sig og eru mjög skiptar skoðanir á því, þá var þetta bara rosa fjör og sumir skemmtu sér betur en aðrir, aðrir nældu sér í strák og fleira......hlakka bara til á næsta balli sko;):klikk: En jæja, ég segi þetta bara gott í bili..

...þar til næst...


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.07.2004 14:27:41 / Anna Ragna

Ekki minn dagur!

Já, ég veit, ég hef verið mjög löt við að skrifa núna síðustu daga...eeeeen vonandi að það lagist!;) En semsagt í gær fórum við að keppa í RVK á móti Fylki og við skulum bara segja að það gangi betur næst!:S En allavega þegar við vorum að hita upp fyrir leikinn og svona 5 mín í leikinn þá misstíg ég mig svona líka rosalega og það var svo ógeðslega vont!!!:cry: En ég harka þetta nú samt af mér og ákveð að byrja bara inná og sjá svo til hvernig ég er...það gengur svona ágætlega finn pínu til en samt svona allt í lagi..en svo tæklar ein Fylkisstelpan mig og ég fæ löppina á henni í ökklan á mér þar sem ég missteig mig....eeeeen ég harka það líka af mér...svo þegar það voru búnar svona 35 mín eða e-ð þá fæ ég boltann beint í andlitið, í augað nánar tiltekið, og ég öskra af sársauka það var svo vont:!::!:8|....ég hélt að augað hafði bara farið inní heilann!...og það endaði bara með því að ég fór út af og sat á bekknum með kælipoka á ökklanum og kaldan þvottapoka á auganu..og ég mér leið eins og fatlaðri manneskju!!:| Hversu mikill hrakfallabálkur getur maður verið!!8|..og núna er ég pínu marin á auganu, en ég vona að ég fái ekki eitthvað svakalega stórt glóðurauga, nei takk:!:

En að öðru: nú fer landsmótið að nálgast óðfluga og í dag er bara EINN dagur í það!!...jibbí...ég get ekki neitað því að það er komin smá tilhlökkun í mína:klikk:...vonandi að landsmótið heppnist bara mjög vel..ég á nú ekki von á öðru!....og bærinn okkar að verða svo fínn og svo ekki sé nú minnst á íþróttavöllinn okkar....þetta er alveg frábært!...Svo um helgina verður bara djammað sko...tvö böll, annað í Miðgarði með ÁMS og hitt í Reiðhöllinni með Stuðmönnum:klikk:..sem verður án efa mjöööög mikið stuð8). En jæja ég segi þetta bara gott í bili!

...þar til næst..


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2004 16:07:39 / Anna Ragna

Allt í fokki!!:/

já ég skal segja ykkur það...í gær gerðist eitt alveg svakalegt! En það var þannig að ég var að fara niðrí Hlíðó að borga skuld svo ég slekk á sjónvarpinu inní stofu auk þess var Jóa að koma að sækja mig því við vorum að fara á æfingu. Þegar ég svo kem aftur þá er kveikt á sjónvarpinu og ég hugsaði bara: hva, slökkti ég ekki á sjónvarpinu??8| Jæja allavega þá er ég bara að labba upp stigann hérna heima þegar ég heyri hvell frá sjónvarpinu..ekkert stóran en hvellur var það!..svo kom þessi líka þvílíka brunalukt í kjölfarið og á þeim tíma´punkti hélt ég að ég væri búin að kveikja í sjónvarpinu..en til allrar lukku var ekki svo. Ég hélt það hefði bara slegið út eða e-ð svoleiss þannig að ég set rofann sem var farin niður aftur upp en ekkert gerist..ég get ekki kveikt á neinu á efri hæðinni, bara á neðri:$....Ég var orðin mjög hrædd um að sjónvarpið væri bara ónýtt og það af mínum völdum:S....svo ég hringi í pabba og segji honum frá þessu og hann hringir í Palla bróður sinn og hann kemur. En svo í millitíðinni komu Jóa og Hera að sækja mig og ég bað þær bara að bíða aðeins. Jæja Palli kemur og kíkir á þetta og við förum niður í bílskúr og ýtum rofanum upp sem var þar og þá kveiknaði á öllu saman og þá prófa ég að setja TV-íið aftur í samband en þá slokknar aftur á því....við vorum orðnar soldið seinar á æfingu þannig að við brunuðum á Blönduós en Palli ætlaði að hringja í rafvikja. Svo þegar ég kem heim til Palla til að ná í lýklana þá var hann búin að hringja í rafvirkja og hann sagði bara að ég mætti ekki setja sjónvarpið í sambandi og þá er þetta í lagi..e-r þéttir eða e-ð álíka fór í sjónvarpinu!..jæja mér létti til að heyra það! En svo þegar ég kem aftur heim þá ætla ég að fara að horfa á sjónvarpið inni hjá mér og ég þá fatta ég að ég get það náttla ekki þegar sjónvarpið í stofunni er ekki sambandi þannig að ég gat ekkert horft á það. Svo þegar ég kom heim úr vinnunni þá ætlaði ég að flýta mér til að ná Grönnum en þá fattaði það náttla að ég gæti ekki horft á sjónvarpið!8|..uss þetta er nú meira ástandið og nú get ég ekki horft á sjónvarpið í kvöld og á morgun...veit ekkert hvenær ég get það...:(...ég sem er mesti sjónvarpssjúklingur sem til er:klikk:...en ég segi nú bara guð sé lof að talvan fór ekki líka..þá veit ég ekki hvað ég myndi gera!!..hehe nú sjáið þið hvað ég er háð tækninni!...ég ætlaði nú að fara í sólbað en það er bara svo mikill vindur að það er ekkert hægt:!::!:jæja, ég læt mér þá duga að fara í pottinn bara í kveld..hehe:klikk:

Segi þetta gott í bili...

..later... Anna Ragna-sjónvarpseyðileggjari!


» 0 hafa sagt sína skoðun